Og hvaða máli skiptir það?

Með fullri virðingu Kalla biskup og Þjóðkirkjunni, þá skiptir þeirra álit frekar litlu. Varla getur hin svokallaða forvarnarstefna þeirra verið trúverðug með allt messuvínið sem hellt er upp í fólk á hverju ári, sérstaklega fermingarbörn. Eða er það ekki svo? Auk þess veit ég ekki til að skortur á aðgengi að áfengi stoppi þá sem þurfa á hjálp að halda vegna ofdrykkju. Hefur t.d. áfengisneysla aukist svo mikið síðan ÁTVR hætti að hafa takmarkaðan opnunartíma og erfitt aðgengi. Í dag er aðgengið gott. Búðirnar eru víða og opnar vel og lengi, a.m.k. miðað við hvernig það var fyrir áratug eða svo, og ágætis úrval - þ.e. á íslenskan mælikvarða. Svo er haldið úti vefsíðu sem gefur ráðleggingar um hvernig vín með hvernig mat, o.fl.

Hefur haftastefnan virkað? Hefur dregið úr áfengisdrykkju eða sjúkdómum tengdum neyslu á áfengi? Varla mætti halda það miðað við hvað þeir SÁÁ menn segja. Frekar að ástandið sé að versna eða kannski eru þeir alltaf með dómdagsspár til að fá meiri peninga frá ríkinu. Það eina sem getur virkað eru öflugar forvarnir. Forvarnir sem eru raunsæjar en ekki bara á móti allri drykkju. Mun betra er að hvetja til hófdrykkju en ekki þessari endalausu ofdrykkja, þ.e. að drekka sig fullan þegar viðkomandi fær sér áfengi. Gott mál að fá sér vínglas með mat en verra ef að farið er að drekka nokkrar flöskur.

En hvaða rök ætli Þjóðkirkjumenn muni nota? Varla geta þeir notast við Biblíuna þar sem ef ég man rétt þá breytti sjálfur frelsarinn vatni í vín.


mbl.is Léttvínsfrumvarp gengur þvert á forvarnastarf þjóðkirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og níu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Vangaveltur um hitt og þetta

Höfundur

Daði Einarsson
Daði Einarsson

Áhugamaður um stefnumótun, sérstaklega í heilbrigðismálum og í því er varðar siðferði í opinberri stjórnsýslu. Ennfremur með mikinn áhuga á gæludýrum og allt sem þau varðar, og rek ásamt tveimur öðrum óháð gæludýraspjall.

Netfang: dadi.einarsson@gmail.com

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband