Já var það ekki

Alltaf gaman að Kínverjum eða a.m.k. leiðtogum þeirra. Núna vilja þeir friðarsamning við Taiwan en auðvitað með því að þeir taki yfir lýðræðislegu eyjuna. Ekki er hægt að þola tilveru lýðræðisríkis svona rétt undan strönd Kína. Það sem verra er að þessi litla eyja skuli standa sig vel efnahagslega og sýni jafnvel íbúum í Kína að ekki sé endilega þörf fyrir kommana eða aðra einræðisherra.

Taiwan er lýðræðislegt ríki sem hefur vegnað vel svotil frá upphafi og á í raun skilið að vera viðurkennt af alþjóðasamfélaginu en ekki hafa stöðu útlagaríkis. Þeim hefur vegnað vel og verið friðsamir. Þeir hafa, eftir því sem ég best veit, alltaf verið tilbúnir í viðræður við Kína um frið en auðvitað vilja þeir vera viðurkennt ríki. Stór hluti heimsins hefur sýnt þessa viðurkenningu í verki með samskiptum við Taiwan, bæði í gegnum viðskipti og önnur tengsl þó óformleg séu. Kína hefur aftur á móti sýnt sitt rétta eðli þegar kemur að Taiwan með því að kúga ríki heimsins til að viðurkenna ekki tilvist Taiwan sem sjálfstæðs ríkis.

Eina rétta í þeirri stöðu sem er uppi milli Kína og Taiwan væri fyrir ríki heimsins, eins og Ísland, að viðurkenna Taiwan sem sjálfstætt ríki og taka upp stjórnmálasamband við þá. Við eigum að sýna lýðræðisríkjum stuðning sérstaklega þegar andstæðingur þeirra er risastórt einræðisríki sem reglulega hótar að senda inn herinn til að hertaka litla lýðræðisríkið.


mbl.is Forseti Kína vill ná friðarsamkomulagi við Taívan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og tveimur?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Vangaveltur um hitt og þetta

Höfundur

Daði Einarsson
Daði Einarsson

Áhugamaður um stefnumótun, sérstaklega í heilbrigðismálum og í því er varðar siðferði í opinberri stjórnsýslu. Ennfremur með mikinn áhuga á gæludýrum og allt sem þau varðar, og rek ásamt tveimur öðrum óháð gæludýraspjall.

Netfang: dadi.einarsson@gmail.com

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 763

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband