Hvað annað ætti hann að segja?

Bush verður auðvitað að hamra á því að ríkisstjórn Íraks og stjórnkerfið almennt sé starfhæft. Að viðurkenna að það sé meira að en ákveðin afmörkuð vandamál væri að viðurkenna að stefna hans í Írak hafi gjörsamlega beðið ósigur. Ég efast ekkert sérstaklega um að þing Íraks getur samþykkt lög og að ríkisstjórnin sé að því leyti starfhæf, en aðalatriðið sem flestir benda á er að ríkisstjórnin hefur ekki stjórn á landinu og er ekki með getu til að tryggja öryggi borgarana. Að geta samþykkt lög er eitt en það er lítils virði ef ekki er geta til að hrinda þeim í framkvæmd. Þar með er stjórnin ennþá, eftir því sem ég fæ best séð, ennþá of veik til geta talist starfhæft yfirvald í landinu. En auðvitað væri annað en núverandi staða óraunhæfar væntingar þegar land er hertekið og öllu kerfinu er hent - sérstaklega í öryggismálum - þá tekur meira en nokkur ár að byggja upp nógu öfluga stjórn til að hafa stjórn á landinu.
mbl.is Bush staðhæfir að Íraksstjórn sé starfhæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og fjórtán?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Vangaveltur um hitt og þetta

Höfundur

Daði Einarsson
Daði Einarsson

Áhugamaður um stefnumótun, sérstaklega í heilbrigðismálum og í því er varðar siðferði í opinberri stjórnsýslu. Ennfremur með mikinn áhuga á gæludýrum og allt sem þau varðar, og rek ásamt tveimur öðrum óháð gæludýraspjall.

Netfang: dadi.einarsson@gmail.com

Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband