Voru ekki danir með svo slæma reynslu af innflytjendum?

Ekki man ég betur en í umræðu um málefni innflytjenda hafi Frjálslyndir og fleiri tekið Danmörk sem dæmi um hvar hefði illa tekist til og þar væru mikil vandamál. En nú vilja Danir fá fleiri innflytjendur og jafnvel slaka á kröfum enda þurfa þeir meira vinnuafl. Vandamálið er mun frekar í Danaveldi eins og á öðrum stöðum í Vestur-Evrópu að þörf er fyrir innflytjendur þó að atvinnuleysi sé í viðkomandi löndum. Tvær ástæður eru fyrir því. Í fyrsta lagi er skortur á sérmenntuðu/sérþjálfuðu starfsfólki vegna þess að dregið hefur úr þeim fjölda innfæddra sem hafa menntað/þjálfað sig í viðkomandi fagi. Í öðru lagi eru ákveðin störf sem innfæddirvilja einfaldlega ekki vinna lengur. Á Íslandi eru störf í fiskvinnslu gott dæmi. Á sama tíma þarf að vinna þessi störf sem eru oft illa launuð á standard íbúa viðkomandi landa en innflytjendur frá fátækari ríkjum eru oft ánægðir með þau laun sem eru í boði.

Að tala um innflytjendur sem vandamál er nokkuð skrítin og þá sérstaklega þegar kemur að aðlögun þeirra að samfélagi þess lands sem þeir flytja til. Eins og ég sagði í grein sem ég skrifaði á bloggið í gær þá er viljinn almennt séð fyrir hendi hjá innflytjendum en ekki nóg gert af hálfu þess lands sem þeir flytja til. Kannski er frekar spurning um hvort að innflytjendum hafi næga möguleika til að læra tungumál viðkomandi lands og annað sem er hluti að aðlaga sig að því samfélagi þess sem þeir setjast að í.


mbl.is Fogh Rasmussen segir þörf á fleiri innflytjendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Gott hjá Rasmussen að viðurkenna þetta, mig minnir að hann hafi verið í forsvari fyrir að herða reglur og gera erfiðara fyrir útlendinga að flytja til landsins. Menn læra svo lengi sem lifa stendur einhversstaðar.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 10.8.2007 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og þrettán?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Vangaveltur um hitt og þetta

Höfundur

Daði Einarsson
Daði Einarsson

Áhugamaður um stefnumótun, sérstaklega í heilbrigðismálum og í því er varðar siðferði í opinberri stjórnsýslu. Ennfremur með mikinn áhuga á gæludýrum og allt sem þau varðar, og rek ásamt tveimur öðrum óháð gæludýraspjall.

Netfang: dadi.einarsson@gmail.com

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 769

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband